Brim er leiðandi sjávarútvegsfyrirtæki og tekur virkan þátt í uppbyggingu íslensks samfélags.
Hlutverk Brims er að auka verðmætasköpun í sjávarútvegi í sátt við samfélagið og umhverfið. Þannig skapar Brim virði fyrir starfsfólk, viðskiptavini, hluthafa og samfélagið í heild. Með ábyrgum veiðum og vinnslu þar sem áhersla er á sjálfbærni og nýsköpun munum við tryggja að sjávarútvegur verði áfram burðarstólpi í íslensku samfélagi.
Með stöðugu framboði af sjávarafurðum í hæsta gæðaflokki og markvissu sölu- og markaðsstarfi munu sjávarafurðir Brims verða eftirsóknarverðar og skila ávinningi til allra hagaðila.
Brim er í forystuhlutverki þegar kemur að samfélagsábyrgð og leggur ríka áherslu á umhverfismál og nýsköpun. Félagið hefur markað sér skýra stefnu í mannauðsmálum með áherslu á jafnrétti, öryggi og aðbúnað starfsfólks. Við ráðningar er lögð áhersla á að fá til starfa hæfa, trausta og árangursmiðaða einstaklinga.
Brim gerir nú fjórða árið í röð grein fyrir ófjárhagslegum þáttum starfsemi sinnar og það er ánægjulegt að gefa í fyrsta sinn út sameiginlega árs- og samfélagsskýrslu. Sjálfbærni og umhverfismál hafa skipað stóran sess í starfsemi Brims undanfarin ár og það fer því vel á að hafa nú eina skýrslu sem gefur góða mynd af starfseminni og áhrifum starfseminnar á umhverfið og samfélagið.
Allar upplýsingar í skýrslunni eru í samræmi við bestu þekkingu sem við höfum yfir að búa á þeim tíma sem skýrslan er rituð en er ekki tæmandi úttekt á öllum þeim áhrifum sem Brim hefur á umhverfi, samfélag og/eða efnahag. Skýrslan er ekki endurskoðuð af þriðja aðila en EFLA hefur yfirfarið framsetningu og upplýsingar um umhverfislega þætti.
Upplýsingar um ófjárhagslega þætti starfseminnar eru unnar í samræmi við GRI Standard (e. Global Reporting Initiative GRI100-400) og UFS leiðbeiningar Nasdaq.