Ársreikningur samstæðunnar fyrir árið 2020 er gerður í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla (IFRS), eins og þeir hafa verið staðfestir af Evrópusambandinu. Ársreikningur samstæðunnar hefur að geyma ársreikning Brims hf. og dótturfélaga þess.
Rekstrartekjur Brims hf. árið 2020 námu 292,4 m€ samanborið við 261,3 m€ árið áður. Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir (EBITDA) var 57,4 m€ eða 19,6% af rekstrartekjum, en var 63,3 m€ eða 24,2% árið áður. Fjármagnsgjöld voru 6,8 m€ samanborið við 4,6 m€ árið áður. Áhrif hlutdeildarfélaga voru jákvæð um 0,8 m€ samanborið við neikvæð áhrif um 1,6 m€ árið áður. Hagnaður fyrir tekjuskatt var 36,4 m€ samanborið við 43,0 m€ árið áður. Gjaldfærður tekjuskattur nam 7,5 m€ en var 9,3 m€ árið áður. Hagnaður ársins var því 29,4 m€ en var 34,0 m€ árið áður.
Meðalfjöldi ársverka árið 2020 var 769 en var 798 árið 2019. Laun og launatengd gjöld námu samtals 66,9 m€ samanborið við 76,6 m€ árið áður (10,3 milljarðar króna á meðalgengi ársins samanborið við 10,5 milljarða árið áður).
Skýr. | 2020 | 2019 | |
---|---|---|---|
Seldar vörur | 4 | 292.438 | 261.322 |
Kostnaðarverð seldra vara | (233.023) | (188.969) | |
Vergur hagnaður | 59.415 | 72.353 | |
Aðrar rekstrartekjur | 6 | 0 | 214 |
Útflutningskostnaður | (7.071) | (10.420) | |
Annar rekstrarkostnaður | 10 | (9.975) | (12.964) |
Rekstrarhagnaður | 42.369 | 49.183 | |
Fjáreignatekjur | 1.967 | 448 | |
Fjármagnsgjöld | (7.611) | (6.372) | |
Gengismunur | (1.135) | 1.306 | |
Fjáreignatekjur og fjármagnsgjöld samtals | 12 | (6.779) | (4.618) |
Áhrif hlutdeildarfélaga | 17 | 819 | (1.552) |
Hagnaður fyrir tekjuskatt | 36.409 | 43.013 | |
Tekjuskattur | 13 | (7.516) | (9.283) |
Hagnaður af áframhaldandi starfsemi | 28.893 | 33.730 | |
Hagnaður af aflagðri starfsemi | 5 | 472 | 228 |
Hagnaður ársins | 29.365 | 33.958 | |
EBITDA | 57.401 | 63.333 | |
Hagnaður á hlut | |||
Grunnhagnaður og þynntur hagnaður á hlut | 23 | 0,015 | 0,019 |
Allar tölur eru í þúsundum evra. Til að fara í ársreikninginn smella hér
Skýr. | 2020 | 2019 | |
---|---|---|---|
Hagnaður ársins | 29.365 | 33.958 | |
Rekstrarliðir færðir beint á eigið fé: | |||
Liðir sem síðar munu verða endurflokkaðir yfir rekstur: | |||
Þýðingarmunur vegna eignarhluta í félögum | (2.699) | 466 | |
Áhættuvarnir vegna langtímaskulda | 22 | 89 | (335) |
Heildarafkoma ársins | 26.755 | 34.089 |
Allar tölur eru í þúsundum evra. Til að fara í ársreikninginn smella hér
Heildareignir samstæðunnar námu 765,0 m€ í árslok 2020. Þar af voru fastafjármunir 647,9 m€ og veltufjármunir 117,1 m€. Í árslok námu heildarskuldir samstæðunnar 427,5 m€ og eigið fé nam 337,5 m€. Eiginfjárhlutfall var því 44,1% en var 45,3% í lok árs 2019.
Skýr. | 2020 | 2019 | |
---|---|---|---|
Eignir | |||
Rekstrarfjármunir | 14 | 188.475 | 169.224 |
Rekstrarfjármunir í smíðum | 15 | 0 | 51.045 |
Óefnislegar eignir | 16 | 329.689 | 297.997 |
Eignarhlutur í hlutdeildarfélögum | 17 | 36.322 | 28.839 |
Langtímakröfur á tengda aðila | 18 | 91.883 | 0 |
Aðrar fjárfestingar | 19 | 1.493 | 2.399 |
Fastafjármunir | 647.862 | 549.504 | |
Birgðir | 20 | 56.898 | 59.768 |
Viðskiptakröfur og aðrar skammtímakröfur | 21 | 28.059 | 37.931 |
Kröfur á tengda aðila | 33 | 10.573 | 0 |
Handbært fé | 21.596 | 53.497 | |
Veltufjármunir | 117.126 | 151.196 | |
Eignir samtals | 764.988 | 700.700 | |
Eigið fé | |||
Hlutafé | 20.052 | 19.913 | |
Yfirverðsreikningur | 59.431 | 54.298 | |
Þýðingarmunur | 118 | 2.817 | |
Annað bundið eigið fé | 49.019 | 36.230 | |
Óráðstafað eigið fé | 208.850 | 204.106 | |
Eigið fé | 22 | 337.470 | 317.364 |
Skuldir | |||
Vaxtaberandi skuldir | 24 | 256.469 | 249.780 |
Tekjuskattsskuldbinding | 25 | 69.383 | 71.465 |
Langtímaskuldir | 325.852 | 321.245 | |
Vaxtaberandi skuldir | 24 | 63.715 | 28.504 |
Viðskiptaskuldir og aðrar skammtímaskuldir | 26 | 21.373 | 22.688 |
Skuldir við tengda aðila | 33 | 5.973 | 2.232 |
Skattar ársins | 25 | 10.605 | 8.667 |
Skammtímaskuldir | 101.666 | 62.091 | |
Skuldir | 427.518 | 383.336 | |
Eigið fé og skuldir samtals | 764.988 | 700.700 |
Allar tölur eru í þúsundum evra. Til að fara í ársreikninginn smella hér
Handbært fé frá rekstri nam 43,1 m€ á árinu 2020 en var 56,7 m€ árið áður. Fjárfestingar námu 83,0 m€. Fjármögnunarhreyfingar voru jákvæðar um 8,0 m€. Handbært fé lækkaði því um 31,9 m€ og var í árslok 21,6 m€.
Skýr. | 2020 | 2019 | |
---|---|---|---|
Rekstrarhreyfingar | |||
Rekstrarhagnaður ársins | 42.369 | 49.183 | |
Rekstrarliðir sem hafa ekki áhrif á fjárstreymi: | |||
Afskriftir og virðisrýrnun rekstrarfjármuna og óefnislegra eigna | 15.046 | 14.364 | |
Hagnaður af sölu eigna | (14) | (214) | |
57.401 | 63.333 | ||
Breytingar á rekstrartengdum eignum | (11.499) | 2.450 | |
Breytingar á rekstrartengdum skuldum | 11.572 | (2.353) | |
Breytingar á rekstrartengdum eignum og skuldum | 73 | 97 | |
Innheimtar vaxtatekjur | 951 | 466 | |
Greidd vaxtagjöld | (7.610) | (6.459) | |
Greiddir skattar | (7.666) | (717) | |
Handbært fé frá rekstri | 43.149 | 56.720 | |
Fjárfestingarhreyfingar | |||
Fjárfesting í rekstrarfjármunum | 14 | (23.963) | (7.080) |
Fjárfesting í rekstrarfjármunum í smíðum | 15 | (12.401) | (11.702) |
Söluverð rekstrarfjármuna | 1.840 | 21.993 | |
Söluverð aflaheimilda | 0 | 12.329 | |
Fjárfesting í dótturfélagi að frádregnu handbæru fé | (17.286) | 11.631 | |
Söluverð eignarhluta að frádregnu handbæru fé | 138 | 0 | |
Lánveitingar til tengdra aðila | 18 | (29.763) | 0 |
Afborganir lánveitinga | 304 | 0 | |
Aðrar fjárfestingar | (1.917) | (35) | |
Fjárfestingarhreyfingar | (83.048) | 27.136 | |
Fjármögnunarhreyfingar | |||
Greiddur arður | (11.921) | (13.353) | |
Keypt eigin bréf | 0 | (13.963) | |
Skammtímalán | 37.035 | (101.582) | |
Tekin ný langtímalán | 5.375 | 103.345 | |
Afborganir langtímalána | (22.491) | (43.085) | |
Fjármögnunarhreyfingar | 7.998 | (68.638) | |
(Lækkun) hækkun á handbæru fé | (31.901) | 15.218 | |
Handbært fé í ársbyrjun | 53.497 | 38.279 | |
Handbært fé í árslok | 21.596 | 53.497 | |
Fjárfestingar og fjármögnun án greiðsluáhrifa: | |||
Söluverð rekstrarfjármuna í smíðum | 64.155 | 0 | |
Lánveitingar | (64.155) | 0 | |
Fjárfesting í eignarhlutum | (5.272) | 0 | |
Seld eigin bréf | 5.272 | 0 | |
Söluverð eignarhluta í félögum | 562 | 0 | |
Lánveitingar | (562) | 0 | |
Fjárfesting í dótturfélögum | 0 | (31.105) | |
Hlutafjáraukning | 0 | 31.105 |
Allar tölur eru í þúsundum evra. Til að fara í ársreikninginn smella hér
Séu niðurstöður rekstrarreiknings reiknaðar til íslenskra króna á meðalgengi ársins 2020 (1 evra = 154,52 ísk) verða tekjur 45,2 milljarður króna, EBITDA 8,9 milljarðar og hagnaður 4,5 milljarðar. Séu niðurstöður efnahagsreiknings reiknaðar til íslenskra króna á lokagengi ársins 2020 (1 evra = 156,1 ísk) verða eignir samtals 119,4 milljarðar króna, skuldir 66,7 milljarðar og eigið fé 52,7 milljarðar.
Verðmætasköpun af rekstri samstæðunnar árið 2020 nam 31,9 m.kr. Fjárhæðinni var ráðstafað til samfélagsins með margvíslegum hætti, s.s. með launagreiðslum til starfsmanna, greiðslum á launatengdum gjöldum, kaupum á aðföngum frá birgjum, greiðslu annarra opinberra gjalda o.s.frv.
Skattbyrði samstæðunnar árið 2020 nam 4,4 m.kr. eða 13,8% af verðmætasköpun þess. Um 41% fjárhæðarinnar eru lögboðin gjöld vegna starfsmanna og 18% eru tekjuskattur til greiðslu.
Til viðbótar við þá skatta, sem gjaldfærðir voru hjá félögunum, innheimtu þau og stóðu skil á sköttum og gjöldum sem ekki teljast til gjalda en tengjast þó rekstrinum og þeim verðmætum sem hann skilar með beinum hætti. Slíkir innheimtir skattar námu 3,8 m.kr. árið 2020.
Skattaspor samstæðunnar árið 2020 nam samtals 8,2 m.kr.
GJÖLD | 2020 | 2019 | 2018 | 2017 | |
Veiðigjald | m.kr. | 454 | 734 | 1.068 | 756 |
Mótframlag í lífeyrissjóð og tryggingargjald | m.kr. | 1.787 | 1.646 | 1.337 | 1.291 |
Afla- og hafnargjöld | m.kr. | 225 | 170 | 134 | 184 |
Skattar á eignir | m.kr. | 150 | 126 | 103 | 136 |
Tekjuskattur | m.kr. | 1.503 | 1.065 | 31 | 129 |
Kolefnagjald | m.kr. | 257 | 226 | 206 | 128 |
Aðrir skattar | m.kr. | 1 | 1 | 1 | 1 |
Greiddir skattar og opinber gjöld | m.kr. | 4.377 | 3.968 | 2.880 | 2.625 |
Skattbyrði starfsfólks | m.kr. | 3.571 | 3.439 | 2.699 | 2.686 |
Fjármagnstekjuskattur | m.kr. | 252 | 178 | 125 | 184 |
Innheimtir skattar | m.kr. | 3.823 | 3.617 | 2.824 | 2.870 |
Skattaspor Brims alls | m.ISK | 8.200 | 7.585 | 5.704 | 5.495 |